Melissa Anne Pfeffer við gasmælingar á Reykjanesskaga. (Ljósmynd: Veðurstofa Íslands/Sara Barsotti)
27 Febrúar 2021 18:52
Vísindaráð almannavarna fundaði á fjarfundi í dag til að ræða jarðskjálftahrinuna sem hófst á Reykjanesskaga þann 24, febrúar með skjálfta af stærð 5,7 og öðrum 5,0 að stærð um hálfri klukkustund síðar. Fundinn sátu fulltrúar frá Veðurstofu Íslands, Háskóla Íslands, Umhverfisstofnun, Isavia-ANS, HS-Orku og ÍSOR.
Fram kom á fundinum að virknin í skjálftahrinunni er núna fyrst og fremst bundin við svæðið í kringum Fagradalsfjall eftir M5,2 í morgun og er hrinan sú öflugasta frá árinu 1933.
Yfir 7200 skjálftar hafa mælst frá því að hrinan hófst 24.febrúar og má búast við því að jarðskjálftavirkni haldi áfram næstu daga.
Vísindaráð fór yfir þær mælingar og gögn sem liggja fyrir s.s. jarðskjálftamælingar, GPS gögn, gasmælingar og úrvinnslu úr gervitunglamyndum. Mælingar gefa engar vísbendingar um að kvika sé að brjóta sér leið upp á yfirborðið, en sýna vel ummerki jarðskjálftanna sem hafa orðið hingað til.
Flestir skjálftar sem mælst hafa síðustu daga eru á um 5 km. dýpi við Fagradalsfjall og hafa ekki færst nær yfirborði, en slíkt gæti verið vísbending um að kvika sé að brjóta sér leið upp á yfirborðið. Í hrinu sem varð við Fagradalsfjall árið 1933 urðu all nokkrir kröftugir skjálftar á skömmum tíma, sambærilegir þeim sem nú ganga yfir. Þeirri hrinu lauk án þess að til eldgoss kæmi. Sama má segja um hrinu sem varð árið 1973.
Núverandi virkni á Reykjanesskaga sem í raun má rekja aftur um rúmt ár hefur verið kaflaskipt og er erfitt að spá fyrir um nákvæma framvindu, en nú er fyrst og fremst horft á þessar tvær sviðsmyndir:
- Það dregur úr jarðskjálftavirkni næstu daga eða vikur.
- Hrinan mun færast í aukana með stærri skjálftum, allt að 5.5-6.5 að stærð.
Langflest hús á Íslandi eru byggð þannig að þau eigi að standast þá hrinu sem nú gengur yfir. Lausir munir, hillur, skápar o.s.frv.geta farið af stað og valdið hættu ef ekki er rétt frá þeim gengið. Því er mikilvægt að huga að innanstokksmunum á heimilum og á vinnustöðum svo þeir valdi ekki slysum.
Áfram verður fylgst náið með framvindu mála og vísindaráð mun funda aftur í næstu viku.
Veðurstofan, Háskólinn og samstarfsaðilar munu vinna að fjölgun mælitækja á Reykjanesi á næstu dögum og vikum.
