24. febrúar.2021 | 13:29
Námskeið um meðferð plöntuverndarvara og útrýmingarefna 8. – 12. mars 2021
Landbúnaðarháskóli Íslands heldur námskeið um meðferð plöntuverndarvara og útrýmingarefna dagana 8. – 12. mars n.k. að Keldnaholti í Reykjavík. Námskeiðið er ætlað þeim sem hyggjast nota plöntuverndarvörur eða útrýmingarefni í atvinnuskyni, annað hvort við eyðingu meindýra eða í landbúnaði eða garðyrkju. Námskeiðinu er skipt upp í þrjá hluta fyrir eftirfarandi markhópa:
- Þá sem hyggjast gerast ábyrgðarmenn í markaðssetningu plöntuverndavara eða útrýmingarefna,
- Þá sem hyggjast nota plöntuverndarvörur í landbúnaði og garðyrkju, þ.m.t. garðaúðun,
- Þá sem hyggjast nota útrýmingarefni við eyðingu meindýra.
Hægt er að taka einstaka hluta námskeiðsins eða alla hluta í heild sinni. Námskrá námskeiðsins byggist á ákvæðum í reglugerð um meðferð varnarefna. Til þess að öðlast þau réttindi sem námskeiðið veitir þarf að standast próf í lok námskeiðs.
Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Landbúnaðarháskóla Íslands, einnig er hægt að senda tölvupóst á [email protected].
Skráning fer fram hér: https://endurmenntun.lbhi.is/varnarefni/
Umhverfisstofnun gefur út notendaleyfi fyrir þá sem kaupa og nota notendaleyfisskyldar vörur. Þeir sem nota útrýmingarefni til eyðingar meindýra skulu hafa notendaleyfi fyrir útrýmingarefnum og þeir sem nota plöntuverndarvörur í landbúnaði og garðyrkju þ.m.t. garðaúðun skulu hafa notendaleyfi fyrir plöntuverndarvörum.